Færsluflokkur: Bloggar

Gúðbjörg og Mogginn

Guðbjörg Matthíasdóttir á að borga 343 miljónir í skatta þetta eru littlir peningar.
Miðað við að hún heldur undir bossan á Davíð Oddsini með því að dæla miljörðum í Morgunblaðshítina, sem er bara bottlaus tunna,hún veit að hún fær þá peninga aldrei til baka samt spreðar hun þessu i blað sem er að fara á hausinn.Það átti að láta hana borga miljarð í skatta,kv

Úngir knattspyrnumenn í Eyjum

mynd016.jpgÞessi mynd er tekinn á malarvellinum í Eyjum líklega 1959 eða 60, ,frá vinstri, Jón Þorvaldsson,Sigurður Jóhansson(Siggi Jó),Hörður Adólfsson,Björn Kristjánsson(Bjössi í Klöpp) Gísli Ásmundsson,Kjartan Ásmundsson,Þorvaldur Hermannsson,Óskar Óskarsson(Óskar Veigu),fremri röð,Guðmundur Guðlaugsson(Gvendur Lalla) Guðjón Sigubergsson(Gutti í Viðey) ,Runólfur Alfreðsson.

Ekki gerði þessi hópur neinar rósir á knattspyrnusviðinu síðar,nema Gvendur Lalla hann varð íslandsmeistari með Týr í fjórða flokki.kv


Þrír höfðingjar úr Eyjum

cimg0233_989007.jpgÞessi mynd er tekinn sunnan við Hásteinsveg 5 árið 1957 eða 8,frá vinstri Haukur Guðlaugsson,Þorvaldur Hermannsson,og Kristinn Andersen.

Skúrinn í bakgrunni myndarinnar tilheyrði Jens Færing,þar fengum við að geima brennudraslið,þá var tíðin að Peyjarnir stálu drasli frá hvor öðrum.

Einn morguninn þegar við komum út þá var búið að rífa hálfa hliðina úr skúrnum og allt draslið horfið,það var lítil brenna hjá okkur þau áramótin.

Ef það er einhver sem les þetta og kannast við þjófnaðinn hann er beðinn að gefa sig fram hér.

 

 


Bekkjamynd frá Vestmannaeyjum

picture_024.jpgÞessi skemmtilega mynd er tekinn í Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja,ég ætla ekki að telja þá upp sem þarna eru,enda man ég ekki nöfnin nema á örfáum,ég læt ykkur sem myndina sjá um að ráða í hver og einn er,enda gaman að velta því fyrir sér,ef það er einhver sem getur rakið það frá a til ö,þá væri gaman að fá það hér á síðuna,kv

Gömul mynd úr Eyjum

cimg0226.jpgÞessi mynd er tekin í Vestmanneyjum árið 1915,hún sýnir miðbæ og austurhluta Vestmanneyja þess tíma.

Húsið hér næst er Faxastígur 3 (Hlíðarás )

Takið eftir að engar götur eru komnar.

Takið eftir Skítakömrunum úti á lóð

Þessi mynd er örugglega tekin á hátiðisdegi,ég dreg þá áliktunn af því að stelpurnar á myndinni eru í sýna fínasta pússi með höfuðföt og fínirí.

Flest húsin sem þarna eru eru horfin í dag.

Gísli J Jonshen litaði myndina,það hefur aldeilis tekist vel hjá honumkv.


Brillantínkynslóðin

picture_419.jpgpicture_446.jpgpicture_431.jpgBrillantín kynslóðin,þetta eru flottir gæjar,frá vinstri Kjartann Ásmundsson, Þorvaldur Hermannsson,Pétur Kjartansson,Fékk þessar myndir sendar frá vini mínum.

Bekkjamynd úr Eyjum

mynd019.jpgÞessi mynd er tekin fermingaárið okkar sem þarna erum árið 1963,Þórarinn Magnússon var þá kennarinn okkar,mig grunar að Þórarinn hafi skilið eftir sig mikið safn gamalla mynda,þar sem Þórarinn var,var myndavélin ekki langt undan.

Víð sem prýðum þennan fríða hóp erum frá vinstri.

Ólafur Gíslason,Arnþór Sigurðsson,Delmar Götuskeggi,Þorvaldur Hermannsson,Birgir Guðjónsson,Kristján Adólfsson,Kristinn Wogfjörð,Gugga(man ekki föðurnafn)Stefanía(man ekki föðurnafn)Auður Dóra Óskarsdóttir,Unnur(man ekki föðurnafn)sú lengst til hægri,man ég hvorki nafn né föðurnafn,hún bjó á Brekastíg.

Fremri röð Ársæll Árnason,nafn á næsta man ég ekki hann kom frá Færeyjum eins og Delmar,Ómar Kristmarsson,Halldór Páll Stefánsson(dáinn)Stefán Gíslason(dáinn)Unnur Krisleifsdóttir, Arndís Hjartardóttir,Þorbjörg Sigurfinnsdóttir(dáinn)Hanna Júlíusdóttir,

Halldór Páll Stefánsson og Stefán Gíslason eru árinu eldri en  við hin.

 


Sumar í Eyjum

cimg0221_973720.jpgÞessi mynd er tekinn norðar við Hánstveg 6,Kiðabergi,myndin er líklega tekin 1954 eða fimm.Myndina tók Lóa á Kiðabergi ,frá vinstri Þorvaldur Hermannsson,Ásta Traustadóttir, Steinunn Traustadóttir, Halla Andersen,ég hef sagt við alla sem myndina hafa séð,snemma beigðist krókurinn,kominn með þrjár á bekkin.hehehe,kv

Kristján hinn Tíundi

cimg0209.jpgÞetta skjal nýtur heiðursess á vegg heimilisins,það sýnir skjal sem foreldrar mínir fengu frá Danska Konunginum árið 1936,Kristjani hinum Tíunda,að foreldrar mínir Hermann Jónsson og Þorsteina Þorvaldsdóttir mættu giftast,eftir að þau óskuðu þess frá Danska Konungi,þá bjuggu þau í Flatey á Breiðafirði, það er merkilegt fyrir okkur sem nú lifum að það er ekki lengra síðan en 1936 sem að það þurfti að sækja um giftingu til Danska Konungsins,lokkurinn sem er efst í rammanum er úr hári bróður míns sem lést af slysförum árið 1943

Sjálfstæðisflokkurinn hefur mart á samviskunni

Nú þegar upp kemst um stórfeld skattsvik innan Bankana þá kemur enn betur í ljós hvað Sjálfstæðisflokkurinn hefur mikið á samviskunni.

Það voru flutt frumvörp trekk í trekk um aukið skatteftirlit,alltaf var það Sjálfstæðisflokkurinn sem setti fótinn fyrir að það næði í gegn.

Þeir vildu að allt væri nánast eftirleist laust,þeir vildu leggja niður Fjármálaeftirlitið,þar til að flogsgæðingur tók þar við, og sinnti hann ekki starfi sýnu.

Flogsgæðingur tók við Sjóvá,þar var eftirlitsleysið svo mikið að hann las einu sinni ekki bréf sem komu inn á hans borð,og stendur Sjóvá uppi nánast gjaldþrota eftir.

Svona er hægt að telja upp endalaust, alstaðar átti frjálshyggjan að ráða ríkjum með algjöru eftirlits leysi allstaðar.

Svo rífur þetta lið kjaft í dag allstaðar þar sem það opnar muninn.kv 


Næsta síða »

þorvaldur Hermannsson

þorvaldur Hermannsson
þorvaldur Hermannsson

Vestmannaeyjingur sem þikir bestur á böllum,var aðal númerið á böllum í Eyjum í denn.


valdivest@visir.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband