Færsluflokkur: Bloggar

Lífsbjörginni fagnað

mynd015.jpgMyndin hér til hliðar er tekinn í félagsheimilinu á Reyðarfirði haustið 1966 og sýnir hluta áhafnar á Bátnum Guðjóni Sigurðssini VE fagna lífsbjörgina eftir að Báturinn hafði farið á hliðina kvöldið áður og sjórinn var komin inn á miðja lúgu,og gúmíbáturin hafði slitnað frá,Bói í Dal var skipstjóri og honum tókst að rétta hann við að hluta, svo þurftum við að taka hluta af nótinni á handafli yfir í bak til að rétta hann við að fullu,þetta var slæm nótt.Þeir sem á myndinni eru frá vinstri,Jóhann Björgvinsson (Jói Danski)Hjörleifur kom að austan og bjó á Staðarfelli,Þorvaldur Hermannsson,Sigurbjörn Ingólfsson,Guðjón(man ekki föðurnafn) kom að austan og giftist inn í Vesturhúsaættina

Vestmannaeyjasund Eyjólfs Jónssonar

cimg0161_968399.jpgEyjólfur lagði til sunds frá Eiðinu mánudaginn 13 júlí 1959,kl 9 árdegis.

Myndin sýnir Eyjólf ganga á land á Landeyjarsand að sundi loknu eftir 5 klukkutíma og 26 mínútur.

Við hægri hlið Eyjólfs er Hermann Jónsson,en við vinstri hlið aðstoðamaður Eyjólfs,Pétur Eiríksson,Drángeyjasundkappi.

Vélbáturinn Hersteinn fylgdi Eyjólfi á sundinu.

Aðrir fylgdarmenn voru Ási í Bæ eigandi Hersteins,og stjórnaði hann sundinu,við árabátinn eru Sigurjón Guðmundsson (Sigurjón á Laugarlandi ) og Gunnlaugur sonur Ása í Bæ

 

 


Gamla liðið í efstu sætin

Allt gamla hruna liðið raðaði sér í efstu sætin í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík,atígli vekur lítil þáttaka í prófkjörinu,aðeirs 7 þúsund af 20 þúsund tóku þátt,þessi 7 þúsund kjósendur eru þeir sem ekkert hafa lært,það kís yfir sig gömlu sökudólgana.

Ég hef enga trú á að þessi listi geri neinar rósir í vor,það eru ákveðnir kjósendur flokksins sem munu skila sér,kjósendur sem flokkurinn hefur getað rekið eins og Fé í rétt um hverjar kosningar sama hvað flokkurinn er búinn að gera af sér.kv


mbl.is Hanna Birna fékk 84% atkvæða í 1. sæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forréttinda aðall

Sigurður Einarsson klikkar ekki á því,eftir að hann er búin að koma Kaupþing á hausinn heimtar hann 244 miljónir út úr þrotabúinu.

Hvernig þetta forréttinda lið hefur fengið að fara með landið er ótrúlegt.

Hluti af þessu forréttinda liði eru útgerðamenn,sem hafa selt og veðsett auðlindina,sem þjóðin á, út og suður,keypt Þyrlu til að komast á milli húsa,lagt miljarða í gjaldþrota dagblað,svona má lengi telja.

Þess vegna finnst mér skondið að þessi forréttinda aðall hafi getað leitt 300 mans til fundar í Eyjum í gær til að verja með sér forréttindin, fólk sem hefur ekkert til saka unnið.

Þeir eru svo ósvífnir að halda því fram að útgerð leggist af í Eyjum ef forréttindin verður tekin af þeim,að það skuli vera til fólk sem dansar með.

 


mbl.is Sigurður gerir launakröfu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eiga ekki að hafa kosningarétt

sjalfstc3a6c3b0isflokkurinn-1.jpgÉg hef stundum sagt það í hálfkæringi að sumt fólk ætti ekki að hafa kosningarétt.

Í dag er ég farinn að tala um það í fullri alvöru að margt fólk er ekki hæft til að ganga að kjörborðinu.

Það væri heldur bjartara yfir Íslandi í dag ef það fólk sem hefur kosið Sjálfstæðisflokkinn síðustu 20 ár hefðu látið það ógert.

Ég tala við fólk sem ég hélt að væri sæmilega vel gefið,það viðurkennir það að Sjálfstæðisflokkurinn beri höfuðábyrgð á því hvernig komið er,en segir í leiðinni að það hafi alltaf kosið flokkinn og ætli að gera það áfram,þess vegna.

 

 

 


Áfram Jóhanna

489283b_947739.jpgJóhanna Sigurðardóttir stóð sig vel í áramótaávarpi sínu,og talaði mannamál.

Það var ekki sama yfirborðskennda bullið í henni og þeim, Davíð,Halldóri,og Geir Haarde á meðan þeir réðu,mönnum sem gerðu ýmislegt af sér gagnvart Íslenskri þjóð

Þjóðin er vel  sett að hafa Jóhönnu í vinnu,ásamt Evu Joly,báðar Konur sem eru komnar á efri ár,launum þeirra er vel varið.

Það er athyglisvert að í öðru sæti sem maður ársins skildi lenda Steingrímur J Sigfússon,þrátt fyrir að standa upp í klof í óvinsælum ákvarðanatökum,það segir mér það að landsmenn telja að við þurfum ekki á þvaðrinu í stjórnarandstöðunni að halda,Bjarni Ben og Sigmundur Davíð komust ekki á blað í þeirri kosningu.kv 

 

 


Um Áramót

villtblom.jpgÁrið í ár er búið að vera mér gjöfult,eintóm gleði og hamingja.

Margs er að minnast um áramót,upp úr stendur kynni mín við gott fólk sem skiptir sennilega hundruðum.

Um Áramót er siður að kjósa mann ársins,í mínum huga er það fólkið sem er að reina að leiða okkur út úr þeirri kreppu sem við erum nú í.

Aftur á móti vil ég tinefna skussa ársins Þingflokk Sjálfstæðisflokksins eins og hann leggur sig.

Ég óska öllum gleðilegs nýs árs 

 

 

 


Skilnaðarjárnið

516347b_947080.jpgÉg var mjög ánægður þegar ég las það að járn númer 9 hafi komið Frú Woods að góðum notum.

Golferill minn í Eyjum fer nú ekkert í sögubækurnar,en það vill nú þannig til að járn númer 9 er uppáhaldsjárnið mitt,með því járni hef ég slegið mart draumahöggið, eins og Frú Woods gerði.

Það sem ég á eftir af golfferlinum mun ég enn meira nota járn númer 9,sem ég mun eftirleiðis kalla skilnaðarjárnið.kv


mbl.is Tiger þurfti lýtaaðgerð eftir rifrildið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Banna á Sjálfstæðisflokkinn

Nú eru uppi umræður í Tékklandi að banna Kommúnistaflokkinn þar,sá flokkur muldi undir flokksgæðingana á meðan hann réði.

Sama ætti að gera hér,það ætti að banna Sjálfstæðisflokkinn,í það minnsta tímabundið á meðan það er verið að reisa landið við, sem tekur örugglega lengri tíma en þau 18 ár sem þessi flokkur tók sér í að koma landinu á hausinn,með því að gefa flokksgæðingum það sem þeim langaði í,og leifðu þeim svo að haga sér eins og þeim sýndist,eins og Kommúnistaflokkurinn í Tékklandi gerði fyrir sýna flokksgæðinga.     Hafið áfram gleðileg Jól


mbl.is Vilja banna kommúnistaflokkinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bestu Jólin

c_documents_and_settings_var_rn_heimsson_desktop_mamma_englar_horfir_a_kertaljos_blair_litir_945791.jpgÞetta eru klárlega mín bestu Jól frá því að ég var krakki í Eyjum,þegar spenningurinn var sem mestur að opna jólapakkana.

Tónleikar á Aðfangadag,síðan jólahugvekja,eftir það var borðaður góður matur með góðu fólki.

Ég þakka öllum fyrir sem stuðluðu að því að svona mátti vera.

Jólakveðja til allra.

 


« Fyrri síða

þorvaldur Hermannsson

þorvaldur Hermannsson
þorvaldur Hermannsson

Vestmannaeyjingur sem þikir bestur á böllum,var aðal númerið á böllum í Eyjum í denn.


valdivest@visir.is

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband